157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:12]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Síðasta ríkisstjórn náði góðum árangri í efnahagsmálum og sá árangur sést svart á hvítu. Fjárlög ársins 2025 gerðu ráð fyrir 1,3% halla en nú eru horfur um 0,4% halla. 19 milljarðar í stað 60 milljarðar kr. Þetta er meðbyrinn, þrótturinn í hagkerfinu. Ríkisstjórnin nefnir þetta hvergi en þykist öllu heldur hafa umbylt ríkisfjármálunum. Þá vaknar einföld spurning: Af hverju var ekki stefnt á hallalausan rekstur strax árið 2026 í stað þess að nýta meðbyrinn? Í stað þess að lækka skuldir og skila afgangi kýs ríkisstjórnin að auka útgjöld jafn harðan. Mun forsætisráðherra viðurkenna að þessi meðbyr hefði mátt skila jöfnuði strax og skuldbinda sig til að verja óvæntum viðbótartekjum í niðurgreiðslu skulda en ekki varanleg útgjöld?