157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:21]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvaða megináherslur eru lagðar til grundvallar í mótun nýrrar atvinnustefnu fyrir landið og hverjir muni koma að þeirri stefnumótun. Á Íslandi og víða í Evrópu eru lítil og meðalstór fyrirtæki burðarásar í atvinnulífinu. Talið er að um 80% launþega vinni hjá slíkum fyrirtækjum hér á landi og að 99% fyrirtækja hér á landi flokkist sem lítil og meðalstór fyrirtæki með starfsmenn undir 250. Verður lögð áhersla á að styrkja grundvöll og rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja jafnt sem fjölskyldufyrirtækja sem oft búa við ójafnt samkeppnisumhverfi gagnvart stórfyrirtækjum, m.a. hvað varðar aðgengi að lánsfé, regluverki og rekstrarumhverfi? Verður horft til þess í nýrri atvinnustefnu að efla nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi ásamt því að tryggja fjölbreytileika og gott aðgengi að menntun og símenntun? Verður horft til skapandi greina og lista og menningar í atvinnusköpun? Verður horft til atvinnusköpunar með tilliti til launa? Verður lögð áhersla á orkufrekan iðnað eða græna atvinnustefnu? Verður í atvinnustefnunni lögð áhersla á að efla íslenska framleiðslu á sem flestum sviðum og á fullvinnslu í sjávarútvegi og landbúnaði? Verður sjálfbær nýting náttúruauðlinda hluti af mótun atvinnustefnu og verndun íslenskrar náttúru? Og að lokum: Verður burðarþol náttúru Íslands metið til móts við stóraukinn ferðamannaiðnað sem fer sívaxandi? Það væri gott að fá yfirferð hæstv. forsætisráðherra yfir það sem ég er að velta vöngum yfir.