fjárlög 2026.
Forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, samráð í þessu skiptir gríðarlega miklu máli. Við ákváðum að fara þá leið að atvinnustefnuráðið sjálft yrði ekki skipað aðilum einstakra atvinnugreina eða hagsmunasamtaka. Hins vegar eru þessir aðilar að fara í þá vegferð núna að funda með þeim aðilum og safna þessum upplýsingum og geta verið með ákveðna armslengd frá sérhverri atvinnugrein til að geta hugsað fyrir landið allt. Það skiptir máli að okkur takist að taka ákvarðanir fyrir landið allt í heild sinni en það verður auðvitað tekið mið af athugasemdum frá verkalýðshreyfingunni og frá einstaka atvinnuvegum.
Ég vil líka leggja áherslu á það, af því að hér er verið að tala um háframleiðnistörf, að þetta eru líka störf sem þurfa að standast þá kröfu að þetta séu gæðastörf. Við munum ekki líða félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði og það verður að passa að við séum í auknum mæli að fjölga störfum þar sem eru góð laun, góðar starfsaðstæður og að unga fólkið okkar hafi áhuga á að starfa í þeim atvinnugreinum til framtíðar hringinn í kringum landið.