fjárlög 2026.
Forseti. Það er vissulega svo að tekjutölur hafa verið að færast til. Við vitum það að þær tölur sem hafa verið að koma inn með hagvexti hafa verið misjafnar eftir árum. Við fengum það sem sumir myndu kalla óvæntar tölur um daginn sem sýndu samdrátt, þvert á það sem við hefðum kannski trúað. Það er alls ekki svo að við séum að leggja upp í þessa vegferð núna fyrir næsta ár og gera ráð fyrir að við fáum meiri tekjur. Ég held að það sé betra að vera með vaðið fyrir neðan sig. Við erum með 27 milljarða viðbótartekjur frá síðustu fjármálaáætlun og eins og ég nefndi hér áðan þá fara í kringum 11, 12, 13 í vexti og verðbætur, um 11 skila sér beint inn í betri halla. Já, það er hægt að telja þarna kannski 5–6 milljarða sem við nýttum með öðrum hætti. Við ákváðum að fara þá leið að styrkja ákveðin innviðaverkefni. Við höfum t.d. viljað fara í það að standa undir vegakerfinu. Við erum að setja umtalsvert hærri upphæðir í vegakerfið. Vissulega sóttum við líka tekjur á móti fyrir því. Við erum að efla ýmislegt í heilbrigðisþjónustu, við erum að sjá aukin framlög, nokkra milljarða í viðbótarframlög í fíkni- og geðsjúkdóma. Auðvitað er alltaf hægt að tína eitthvað til en ég held að við áttum okkur alveg á því og á umræðunni þarna úti að það sem var ekki gert var líka sársaukafullt. Við erum að stíga þessi skref, við viljum fá afgerandi viðsnúning og ég held að það að við séum að skila fjárlögum með 15 milljarða kr. halla sé býsna gott. Vil ég gera betur? Endilega. Ég bara hvet okkur til þess að eiga uppbyggilega umræðu við meðferð málsins í nefndinni og það er aldrei að vita nema fólk geti komið sér saman um einhverjar viðbótartillögur.