fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir svarið og er sammála því að þetta er áskorun, það er ákall um frekari útgjöld um allt en væntingarnar um að ná niður verðbólgunni og þar með vöxtum með gríðarlegum ávinningi fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu hljóta að vera öllu öðru sterkari þegar við erum svona nálægt markinu. Forsætisráðherra sagði: Við hefðum getað eytt meiru en við kusum að gera ekki meira. Þá hlýtur maður að spyrja hvort ekki hefði verið hægt að segja: Við ætlum bara að eyða 110, sem er 80% aukning frá árinu áður, ekki nærri 100? Það er sameiginlegt átak sem þarf til að ná niður verðbólgu og vöxtum og þessum verðbólguvæntingum og það þarf eitthvað, það þarf sennilega bara sleggju, alla vega eitthvert högg, eitthvað óvænt. Það hefði verið óvænt ef ríkissjóður gæti skilað hallalausum fjárlögum strax árið 2026 miðað við hvernig margir hafa talað undanfarin ár.
Þess vegna spyr ég og ítreka reyndar spurningu frá því fyrr í vor þegar ég spurði hæstv. forsætisráðherra: Hefði ekki verið skynsamlegt og er ekki skynsamlegt að kalla saman alla hagaðila til þess einfaldlega að spyrja hvað við getum gert til þess að breyta þessum verðbólguvæntingum (Forseti hringir.) sem eru viðvarandi? Er það kannski bara það að ná hallalausum fjárlögum? Þá er það verkefni sem við tökum glöð við í þinginu (Forseti hringir.) úr því að ríkisstjórnin treystir sér ekki til þess.