157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:35]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég hef sagt að ef við þurfum að gera meira hraðar þá gerum við það, það er einfaldlega þannig. En ég biðla þá líka til minni hlutans að hafa það í huga að þegar fólk kemur hér upp og segir: Ekki hækka krónutölugjöld, ekki hækka kílómetragjald, ekki hækka bifreiðagjöld, ekki breyta þessari ívilnun, þá er fólk byrjað á baunatalningu sem endar í ansi stærri halla. Ég vil nefna ákveðin verkefni sem við ákváðum að leggja höfuðáherslu á þrátt fyrir þær aðstæður sem við erum í. Það eru fyrst og fremst öryggismálin. Við erum að setja 2–3 viðbótarmilljarða í öryggisvistun ósakhæfra einstaklinga. Þetta er verkefni sem hefði verið mjög auðvelt að sleppa vegna þess að það er enginn þarna úti að berjast fyrir þeim, það er enginn að tala um þetta. Við settum rúman milljarð í lögregluna sem er orðin sýnileg og fólk finnur fyrir því. Við erum að setja fjármagn í alls konar þætti til að mynda, eins og ég nefndi hér, í heilbrigðisþjónustu. Við erum að mæta rekstri nýrra hjúkrunarrýma. Já, það hljómar eins og það sé stutt í land en það hafa engu að síður erfiðar ákvarðanir verið teknar. Ég legg til að við leggjumst yfir þetta og það mun ekki standa á okkur. Ef það þarf að ná niður verðbólguvæntingum og gera meira hraðar þá erum við tilbúin til þess ef við fáum raunhæfar tillögur hér, ekki bara um eftirgjöf á tekjum vegna þess að það þarf þá líka að halda því gangandi svo við náum núllinu.