157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágæta ræðu, og raunar innblásna og fulla af eldmóð, sem við raunar deilum, held ég, fyrir skilvirkum rekstri hins opinbera og öflugu atvinnulífi.

Mig langar aðeins til að fara yfir nokkur atriði sem hv. þingmaður vildi kalla skattahækkanir en eru skipulagsbreytingar á skattkerfinu vegna þess að eins og hv. þingmaður veit er hlutfall tekna ríkisins af vergri landsframleiðslu ekki að hækka. Ég vil sérstaklega víkja að spurningu hennar um hvers vegna þörf væri á slíkri einföldun. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, þetta er gagnrýni sem hefur komið frá alþjóðastofnunum á íslenska skattkerfið og við þurfum aðeins að taka til okkar vegna þess að Ísland, vegna smæðar sinnar og fólksfæðar, á raunverulega erfitt með að reka mjög flókin kerfi, bara það að manna þau hreinlega verður snúið. Við erum þunnt smurð. Og svo ég vitni nú í samtöl sem ég hef átt í gegnum tíðina í tengslum við önnur verkefni við fyrrum skattstjóra þá byrjum við með einföld og góð kerfi og vegna góðra fyrirætlana þeirra sem eru í þessum sal á ólíkum tíma eru gerðar breytingar til að koma til móts við einhver sjónarmið sem að jafnaði eru skynsamleg. En þau verða til þess að smám saman verður kerfið flóknara og flóknara og á endanum verður mjög dýrt að reka það.

Við þurfum að geta tekið um þetta umræðu, að það er einhver kostnaður af löggjöf. Það er einhver ábati, ég er ekkert að gera lítið úr því, en það er kostnaður bæði í formi eftirlits og raunverulega þess tíma sem almenningur þarf að verja til að fara eftir fyrirmælum hins opinbera. Ég held að við hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir getum tekið upplýsta umræðu um að þarna eru málefnaleg sjónarmið.