157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:16]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Nú hefur hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir tekið snúning á fyrirbærinu andsvör og snúið þeim upp á mig, útsmogið og lævíst, en ég tek því bara eins og það er (Gripið fram í.) og þakka henni fyrir spurningarnar. Ráðleggingar þessara tveggja aðila, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD og kannski þá sérstaklega ráðleggingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem við höfum mjög góða reynslu af því að vinna með, hafa mjög snúið að því að íslenska skattkerfið sé flókið. Eins og hv. þingmaður veit hafa þeir svo sem kvartað yfir mörgu sem er ekki pólitískur vilji, held ég, hjá nokkrum flokkum á Alþingi til að gera neitt með eins og t.d. þrepaskiptingu virðisaukaskattskerfisins. Það byrjaði lífið sem ákaflega einfalt og fallegt kerfi, hannað fyrir íslenskar aðstæður en hefur smám saman orðið töluvert flóknara en það þyrfti að vera vegna þess að það er verið að koma til móts við alls konar sjónarmið sem alveg örugglega eru málefnaleg en við horfum aldrei til kostnaðarins sem fylgir breytingunum. Ég get ekki þulið upp ráðleggingarnar eftir minni en get komið þeim til hv. þingmanns.

Ég ætla síðan að leyfa mér að svara því, þótt ég sé hér í andsvörum við hana, að þess mun vissulega sjá stað á þingmálaskrá þegar ráðist verður í aðgerðir vegna atvinnustefnu en þær snúast að langsamlega stærstum hluta um einföldun regluverks. Ég er sannfærður um að við hv. þingmaður getum átt mjög málefnalega umræðu um það enda tel ég að það sé áhugamál okkar beggja. En mig langaði bara til að koma svona almennt með þá ábendingu að þegar við tölum um tekjur ríkisins er alltaf langsamlega heilbrigðast að miða við hlutfall af landsframleiðslu vegna þess að ríki, öfugt við einstaklinga, eldast ekki og fara á ellilífeyri, þau eru einfaldlega alltaf til. Gjaldmiðlar, krónan er ekkert öðruvísi en aðrir, eru ekki nákvæmir mælikvarðar. Þannig að þegar við tölum um breytingar á skattkerfum er mikilvægt að við köllum hlutina (Forseti hringir.) það sem þeir raunverulega eru. Breytingar á krónutölum þurfa ekki að vera skattahækkanir.