157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:41]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að óska ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur til hamingju með sitt fyrsta fjárlagafrumvarp og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra líka. Ég verð nú að segja bæði sem kjósandi og sem hægri sinnaður þingmaður að þá voru væntingarnar töluverðar. Ég hef verið ánægður með hvernig talsmenn ríkisstjórnarinnar og hæstv. fjármálaráðherra hafa talað skýrt um mikilvægi þess að vera með ábyrg fjárlög, ábyrga fjármálastefnu og að það þurfi að hagræða og það þurfi fyrst og fremst að sýna ábyrgð til að lækka hér vexti og verðbólgu. Þetta hefur allt saman verið rétt og satt. Ég hef verið tilbúinn til að leggjast á árarnar með ríkisstjórninni í þessari vegferð og hvet hana til þess. Svo heyrði ég líka alla kosningabaráttuna og eftir kosningar og þegar stjórnarsáttmálinn var gerður að hér ætti ekki að hækka neina skatta á fólk og fyrirtæki. Það var bara ekkert undan þessum áformum ríkisstjórnarinnar að kvarta. Það var ekkert nema sjálfsagt að styðja þau í þessum góðu málum. En svo virðist annað koma á daginn, því miður, þegar verkin eru látin tala. Þá eru þau í allt aðra átt og hljóð og mynd fara ekki saman, því miður.

En áður en ég hér, þingmaður úr stjórnarandstöðu, hefst handa við að gagnrýna það sem mér finnst miður fara í þessu fjárlagafrumvarpi og fjármálastjórn þessarar ríkisstjórnar langar mig aðeins að rifja upp hvað við Sjálfstæðismenn gerðum frá því við komum inn í fjármálaráðuneytið 2013. Ég veit að spurningin kemur alltaf upp: Af hverju voruð þið ekki búin að þessu og hvað gerðuð þið? Núverandi ríkisstjórn á líka svolítið erfitt með að átta sig á því að hún sé komin til valda og sé ekki lengur í stjórnarandstöðu af því hún er ítrekað að tala alltaf um fyrri ríkisstjórnir og að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið við völd og því skulum við aðeins rifja upp hvernig það er. En mín ræða sem nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd mun fyrst og fremst fjalla um skatta og gjöld og tekjuöflun ríkissjóðs og hvaða forsendur eru gefnar í fjárlagafrumvarpinu gagnvart því. Þá vil ég minna á það að á þeim tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn, mestallan tímann í fjármálaráðuneytinu frá 2013, þá gerðum við töluverðar breytingar á tekjuöflunarkerfinu og skatttekjunum og gjöldunum.

Þar má kannski fyrst nefna þegar hið almenna þrep virðisaukaskattsins var lækkað úr 25,5% niður í 24% en 80% allra vaskskyldra útgjalda eru í þessu þrepi. Gríðarleg skattalækkun fyrir fólk og fyrirtæki. Miðþrepið í tekjuskattinum var afnumið sem lækkaði skattbyrði meðaltekna á Íslandi. Venjuleg millistéttarfjölskylda sem var með á þeim tíma ca. 750.000 kr. í laun þurfti að borga 50.000 kr. minna í skatt í hverjum mánuði út af aðgerð Sjálfstæðisflokksins. Almennir tollar og vörugjöld voru afnumin með öllu, hátt í 1000 númer, gjörbreytti stöðu hér á landi á mörgum sviðum. Við innleiddum séreignarsparnaðarleiðina samhliða skuldaleiðréttingunni þar sem var hægt að nýta séreignarsparnaðinn skattfrjálst inn á íbúðalán, sem er ein farsælasta lausn sem hefur verið gerð af því að þarna erum við að hjálpa fjölskyldum sem eru að koma þaki yfir höfuðið, mynda skjól yfir fjölskylduna og börnin, fjölskyldur stækka þegar börnum fjölgar og annað slíkt, þarna var komið tækifæri til þess að hvetja þau til að spara og um leið lækka sína greiðslubyrði. Það var búið að reikna út að þetta samsvaraði u.þ.b. 4% kjarabótum fyrir hvern launþega sem nýtti sér þessa leið. Þetta gerði það að verkum að efnahagsreikningur ríkisins var mun heilbrigðari. Þess vegna eru skuldir heimilanna mun minni núna en hefur gengið og gerst. Það kemur sér heldur betur vel núna þegar við erum að berjast við vexti og verðbólgu.

Persónuafslátturinn var ekki bara verðbættur heldur plús 1%. Það gerðist á okkar vakt þannig að nú er fyrirkomulagið þannig. Tekjumörk erfðafjárskatts voru hækkuð og tryggt að þau séu vísitöluhækkuð alltaf ár frá ári. Fyrstu tvö árin eftir breytinguna jukust tekjur ríkissjóðs um 5 milljarða á ári. Að lækka erfðafjárskattinn jók tekjur ríkissjóðs tvö ár í röð um 5 eða 6 milljarða á ári. Nú er hægt að selja sumarhúsið sitt eða aðra eign ef þú átt hana lengur en sjö ár án þess að lenda í skerðingum og skattveseni út af því. Almannatryggingunum var töluvert breytt. Þar var sett inn frítekjumark sem var komið upp í 36.500, ef ég man rétt, þegar yfir stóð, plús það að atvinnutekjurnar voru 200.000 og svo innleiddum við nýtt kerfi fyrir öryrkja sem tók gildi núna 1. september sem var að tryggja þeim svipaðar kjarabætur. Svona gæti ég haldið lengi áfram.

Það er eitt sem ég ætla að segja að lokum, af því að tíminn líður svo hratt hér í þessu, sem er það að við fórum aldrei upp fyrir verðbólgumarkmið heldur núna síðustu árin. Eftir að það fór að þrengja að út af utanaðkomandi aðstæðum þá fórum við ekki með krónutöluhækkanirnar upp fyrir verðbólgumarkmiðin. Einu sinni fórum við meira að segja bara upp að kjarabótamarkmiðinu um 2%, annars fórum við ekki upp fyrir 2,5% en núna ætlar ríkisstjórnin að fara upp í 3,7% hækkun þarna sem kemur verst niður á þeim lægst launuðu að sjálfsögðu.

Hér í lokin ætla ég að fara yfir það hvað mér þykir miður í þessu. Það er hvernig fjölskyldunni í landinu er fórnað í þessum fjárlögum. Það á að afnema séreignarsparnaðinn, afnema samsköttun hjóna, það á að fara með krónutöluhækkunina svona hátt og það á að setja flókna og ógagnsæja skattheimtu á alla í gegnum kílómetragjald og lengi mætti telja. Þetta eru mjög vondar ráðstafanir sem ég mun nýta það tækifæri sem ég get til þess að reyna að tala ríkisstjórnina ofan af, og stjórnarliðana, og er boðinn og búinn til þess að leggja henni lið í að vinda ofan af þessu, breyta þessu og við eigum að tryggja að séreignarsparnaðarleiðin verði varanleg. Þetta er góð lausn. Hún er efnahagslega góð, hún er líka góð fyrir fjölskyldurnar í landinu. Það er nefnilega sá hópur sem við megum ekki gleyma en virðist oft gleymast og þeim hóp er oft ýtt út af borðinu sem tekjuháum hóp, það er millistéttin í landinu, ungt fólk sem er að koma sér upp heimili, er að klára sitt háskólanám, kaupa fyrsta bílinn, fyrsta húsið, er að eignast börn. Það er að borga námslán, borga bílalánið, borga íbúðalánið. Þetta er ekkert hátekjufólk, þau bara að vinna svo mikið til að dæmið gangi upp og þá eru þau flokkuð af þessari ríkisstjórn sem hátekjufólk og eru þá náttúrlega bara glæpamenn að hafa svona háar tekjur og þess vegna verður að skattleggja þau meira. Þær skattahækkanir heita tiltekt, leiðrétting og sanngirnisaðgerð. Fjölskyldufólkið, hryggjarstykkið í íslensku samfélagi — það á að fara að ráðast á grunneininguna sem er fjölskyldan og sagt í samsköttuninni að það nýtist bara tekjuhærri af því að oftast eina fyrirvinnan á heimilinu eða sú sem er aðalfyrirvinnan þarf að vinna mun meira til að láta enda ná saman út af misjöfnum aðstæðum í fjölskyldunni. Þetta er samrekstur. Auðvitað hefur það áhrif á þann tekjuminni. Að sjálfsögðu hefur það áhrif.

Þetta er það sem ég vildi segja á þessum tíu mínútum sem ég hef. Það er margt annað sem þarf að fara yfir þessu í fjárlagafrumvarpi og hlakka ég til umræðunnar og vinnunnar við það hér í þinginu sem er fram undan.