157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:55]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég er ekki sammála því að við séum að fara að setja allt í frost með þessum fjárlögum. En svo að ég víki aftur að upptalningu þingmannsins á þeim aðgerðum sem Sjálfstæðisflokkurinn greip til á sínum tíma í ríkisstjórn, hv. þingmaður vék líka að því í sínu svari — þegar þetta var allt saman gert var fall WOW-air ekki nýbúið að gerast, styrjöldin í Úkraínu og heimsfaraldur höfðu ekki átt sér stað. Ég spyr því: Er hv. þingmaður að leggja það til að núverandi ríkisstjórn ráðist í þær aðgerðir núna sem Sjálfstæðisflokkurinn greip til á árunum 2013–2016 við allt aðrar aðstæður?