157. löggjafarþing — 3. fundur, 11. sept. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar ágæta svar og vil taka undir hennar orð, að ég held að það sem við þurfum að gera er að reyna að nálgast þetta viðfangsefni með einhverjum nýjum hætti sem skilar okkur betri árangri en við höfum því miður séð í fortíðinni. Það er nákvæmlega þess vegna sem við erum hér, til að reyna að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Ég fyrir mitt leyti hlakka til þess samtals við þingmann.