fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir spurninguna. Það er þessi mælanlegi árangur, ef ég byrja þar, sem er öllu ofar, að vita hvaða árangri við ætlum að ná. Ef við vitum ekki hvaða árangri við ætlum að ná, og getum ekki fest fingur á það, þá er mjög erfitt heilt yfir fyrir okkur að sigla í sömu átt. Ég undirstrika það að mér finnst það kannski vera eitthvað sem megi horfa á í samhengi við fjárlögin, þ.e. að skerpa aðeins á því. Það er verið að auka fjármagn í ólík skólastig heilt yfir en það þarf að skerpa á þessum gæðaviðmiðum og það þarf að bæta í, sérstaklega þegar kemur að íslenskunni.
Hv. þingmaður spyr, í samhengi við þátttöku atvinnulífs, hvaða leiðir séu færar. Það er mjög mikilvæg spurning og í raun grundvallarspurning í því samhengi sem ég nefndi áðan. Margt af því fólki sem kemur hingað til lands — hvaða hvata á það að hafa til að læra málið? Á það að vera ráðningarferlið? Á það að vera eitthvað annað? Ég er ekki með svarið nákvæmlega en ég vil frekar nota jákvæðu hvatana, láta verðlauna fólk og fyrirtæki fyrir að ganga vel. Ég held að það séu betri leiðir frekar en að vera með harðar skyldur. Ef við getum fundið leiðir til að verðlauna þá held ég að það sé yfirleitt betra. En við skulum ekki vinna þetta mál heilt yfir með því að vera, hvað á ég að segja, of einföld. Þetta er risastórt innviðamál, 50.000 manns, um 30% barna í grunnskólum, þó svo að mörg hver hafi fæðst hér á landi. (Forseti hringir.) Tökum þessu jafn alvarlega og jarðgöngum og vegakerfinu.