fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir skörulega ræðu og vil taka undir orð hennar um framsetningu fjárlaga. Sjálfur hef ég gert það að umtalsefni í þessum stól á liðnum árum að hugtakið frumjöfnuður er alveg sérstaklega ógegnsætt, ég hygg að það séu ekkert sérstaklega góðar fréttir að taka það fram að þú eigir fyrir öllu nema vöxtunum af húsnæðisláninu þínu eða hvað sem það er, og ekki batnar það þegar hann er orðinn hagsveifluleiðréttur. Ég vil þess vegna benda sérstaklega á að gerð var umtalsverð bragarbót á framsetningu fjárlaga á fjárlög.is þar sem sérstaklega er reynt að hafa framsetninguna eins skýra og nokkur kostur er einmitt til þess að eðlilegt aðhald almennings við rekstur hins opinbera verði eins skilvirkt og mögulegt er.
Síðan er ég nú ekki fyllilega sammála hv. þingmanni varðandi samanburð útgjalda ríkisins. Ríkið er að því leyti ólíkt einstaklingi að það eldist ekki, tekjur þess eru viðvarandi og raunverulega er ekkert óeðlilegt að miða þróun tekjuliða útgjalda við landsframleiðslu. Raunar er það alls ekkert óskynsamlegt heldur í tilfelli einstaklinga. Ef við erum að velta því fyrir okkur hvort eitthvað hafi raunverulega hækkað þarf að bera það saman við verðlag, eins og allir vita, og ef við viljum vita hvort eitthvað hafi rýrt hag heimila þarf að bera það saman við þróun tekna. Það er raunverulega það sem verið er að gera þegar borið er saman við landsframleiðslu, það er verið að bera saman við þróun tekna.