fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að veita mér tækifæri til að svara honum, þeim spurningum sem hann ekki spurði. Ég get þá líka varpað fram öðrum spurningum. Ég áttaði mig hins vegar ekki alveg á því hvort hæstv. fjármálaráðherra er í sjálfu sér að mæla því bót að skattar séu með einhverjum hætti tengdir við landsframleiðslu. Ég nefni sérstaklega þessa ofurskattlagningu sem hvílir á bílaeigendum. Ég þreytist ekki á að nefna það að bifreiðakaup eru næststærstu, næstumfangsmestu, útgjöld heimilanna. Á eftir fasteign þá er það að kaupa sér bíl sem tekur mest í. Venjulegur bíll sem kostar 6 eða 7 milljónir í flestum ríkjum Evrópusambandsins kostar hér kannski 10–14 milljónir af því að það eru lagðir ofurtollar og ofurskattar á bifreiðaeigendur. Það væri áhugavert að vita hvort hæstv. fjármálaráðherra sjái ekki fram úr þessu fari, þessari þróun. Ef það verður síðan til viðbótar að þetta fylgi landsframleiðslu, þessi ofurskattlagning, þá finnst mér illt í efni. En það væri gaman að vita hvaða afstöðu hæstv. fjármálaráðherra hefur til þessarar ofurskattlagningar á bifreiðaeigendur, á heimilin í landinu, burt séð frá því hvaða mælikvarðar eru notaðir.