157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:55]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2026 sem lagt er fram af ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og hæstv. fjármálaráðherra hefur mælt fyrir í dag. Þetta er stærsta mál hvers löggjafarþings því hér birtist heildstæð mynd af því hvernig ríkisstjórnin hyggst ráðstafa almannafé, hvaða áherslur hún setur í forgang og hvaða verkefni hún lætur sitja á hakanum. Fjárlögin segja okkur sannleikann um pólitíska stefnu ríkisstjórnarinnar. Þau sýna hvort aðgerðir hennar séu í samræmi við orð um aðhald, ábyrgð og verðbólgustjórn eða hvort staðreyndirnar segi aðra sögu.

Samkvæmt frumvarpinu nema heildargjöld ríkissjóðs á árinu 2026 1.607 milljörðum kr. eða rúmum 30% af vergri landsframleiðslu. Það er um 120 milljarða hækkun frá fjárlögum 2025 þar sem gjöldin námu um 1.483 milljörðum kr. Þetta þýðir að útgjöld ríkisins aukast um rúmlega 8% á milli ára. Í fjárlögum fyrir árið 2025 var útgjaldavöxturinn hóflegur og því eru það vonbrigði að sjá hversu mikill vöxturinn er í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026. Þessi þróun er áhyggjuefni. Ríkisstjórnin kynnir fjárlögin sem aðhaldssöm og stöðug og notar orðið tiltekt en tölurnar sjálfar segja allt annað. Það er ekki aðhald að auka útgjöld ríkisins svona hratt, sérstaklega þegar hagkerfið er enn að glíma við mikla verðbólgu og háa vexti.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að hallinn á ríkissjóði dragist saman úr um 26 milljörðum kr. frá samþykkt fjármálaáætlunar í 15 milljarða í fjárlögum. Það er jákvætt út af fyrir sig en við verðum að spyrja okkur: Er þetta raunveruleg afkomubæting eða einfaldlega leikur að tölum? Því heildarútgjöld ríkisins halda áfram að aukast, bæði í krónum talið og í hlutfalli sem er umfram verðbólgu og mannfjölgun. Það er ekki aðhald að auka gjöldin og vona að skatttekjur vaxi hraðar. Því hlýtur maður að spyrja sig: Er þetta raunveruleg afkomubæting eða hreinn útgjaldavöxtur? Aðhald ríkisfjármála þarf að sjást í raunverulegum lækkunum útgjalda eða a.m.k. í því að hemja vöxt þeirra. Hér sjáum við hins vegar vaxandi launakostnað, vaxandi tilfærslur og vaxandi vaxtagjöld. Í fjárlögunum kemur fram að vaxtagjöld ríkisins nema 125 milljörðum kr. á næsta ári. Það er hærri upphæð en ráðstafað er í heila málaflokka eins og allt háskólastigið eða samgöngumál. Það er alvarlegt þegar vaxtakostnaður er orðinn hærri en fjárfesting í innviðum samfélagsins. Þá þarf að bregðast við. Við Sjálfstæðismenn styðjum alla viðleitni í að ná niður skuldum og lækka þar með vaxtakostnað ríkisins. Ég vil samt minna á það í þessu samhengi að á síðustu fimm árum hefur ríkissjóður tekið á sig miklar byrðar til að styðja við fjölskyldur og fyrirtæki í landinu. Er skemmst að minnast líklega á fjórða hundrað milljarða stuðnings við þjónustugreinarnar í gegnum Covid-heimsfaraldurinn og svo hátt í 100 milljarða uppkaupa á heimilum í Grindavík og annarra verkefna tengdum náttúruhamförunum á Reykjanesskaga. Höfum í huga að á síðustu kjörtímabilum lagði þáverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, ofuráherslu á að greiða niður skuldir ríkisins. Skuldastaða ríkisins var því góð þegar þau áföll sem ég nefndi hér að framan riðu yfir og ríkissjóður hafði því getu til að styðja við. Það er ekki sjálfgefið.

Forseti. Það má segja að launakostnaður ríkissjóðs og tilfærslur í kerfum keyri áfram útgjaldavöxtinn. Launakostnaður ríkisins hækkar úr 409 milljörðum árið 2025 í 439 milljarða árið 2026, sem er hækkun upp á 30 milljarða. Rekstrartilfærslur hækka á sama tíma úr 579 milljörðum í 619 milljarða. Þetta eru kerfisbundnar hækkanir sem ekki verður auðvelt að snúa við. Þær þýða að útgjaldagrunnur ríkisins heldur áfram að þyngjast ár frá ári og lítið svigrúm verður því til fyrir ný verkefni án þess að hækka skatta.

Það er ljóst að baráttan við verðbólguna verður áfram stærsta áskorun nýrrar ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin segist leggja fjárlögin fram til að styðja við baráttu gegn verðbólgu. En hvernig á að hemja verðbólgu með þeim útgjaldavexti sem við sjáum hér í þessu fjárlagafrumvarpi? Þjóðhagsspá sem liggur til grundvallar fjárlögum gerir ráð fyrir að verðbólga verði 3,2% árið 2026. Það er enn yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Á sama tíma er gert ráð fyrir launahækkunum upp á tæp 5% sem eykur enn þrýsting á verðlag. Ef ríkisútgjöld halda áfram að vaxa svona hratt mun baráttan við verðbólgu dragast á langinn. Ríkisstjórnin getur ekki sagt eitt en gert allt annað. Orð um aðhald þurfa að endurspeglast í tölunum sjálfum.

Það er jákvætt að sjá að fjárheimildir til útlendingamála fara úr rúmum 10 milljörðum í 6,5 milljarða. Það er vel og ljóst að þær aðgerðir sem síðasta ríkisstjórn fór í hafa skilað þeim árangri sem lagt var upp með, en það var að fækka umsóknum, ná niður kostnaði og flýta málsmeðferð. Heilbrigðismál eru áfram stærsti útgjaldaliðurinn með yfir 400 milljarða kr. Það er eðlilegt að heilbrigðiskerfið taki mest til sín, enda er heilbrigðiskerfið burðarás samfélagsins. Þó að fjárheimildir hækki ár frá ári breytir það ekki þeirri staðreynd að biðlistar lengjast, skortur er á hjúkrunarrýmum og sjúkrahúsin glíma við viðvarandi mönnunarvanda. Það er ekki nóg að hækka tölur í fjárlögum, það þarf að tryggja að peningarnir nýtist betur. Það krefst umbóta í rekstri, nýsköpunar í skipulagi þjónustunnar og meira svigrúms til einkaframtaks sem getur létt á hinu opinbera kerfi.

Ég get ekki látið hjá líða að nefna hér eitt af málum ríkisstjórnarinnar sérstaklega en það er að ég tel mjög varasamt það frumvarp sem hér liggur fyrir á þingmálaskrá, að binda bætur almannatrygginga við launavísitölu. Ástæðan er einföld. Slíkt myndi þýða að útgjöld ríkissjóðs hækki mun hraðar en eðlilegt er þar sem launavísitalan tekur mið af samningum og kjarabaráttu á almennum vinnumarkaði. Hlutverk almannatrygginga er að tryggja fólki lágmarksframfærslu og öryggi en ekki elta meðallaun samfélagsins. Ef við förum þá leið erum við í raun að breyta almannatryggingakerfinu í verkfæri tekjujöfnunar sem mun reynast ósjálfbært til lengri tíma. Það skapar óstöðugleika í ríkisfjármálum, mismunun milli bótaflokka og getur aukið verðbólguþrýsting. Þetta er því ekki ábyrg leið í þágu þeirra sem kerfið á að verja.

Sömuleiðis verð ég að nefna hér að það liggur einnig fyrir að afnema samsköttun hjóna. Það mun koma sér illa fyrir fjölskyldufólk. Samsköttun hefur verið mikilvægur stuðningur við heimili þar sem annað foreldri hefur minni tekjur eða er heima með börnin. Með samsköttun gátu hjón lagt saman tekjur sínar og nýtt báða persónuafslættina. Það létti skattbyrði heimilisins og gaf fjölskyldum svigrúm. Þessi aðgerð mun bitna mest á tekjulægri heimilum og ungu fólki sem er að koma sér upp fjölskyldu. Þetta er hópur sem þarf að finna öryggi í því að geta reitt sig á réttlátt og fjölskylduvænt skattkerfi. Með afnámi samsköttunar er verið að veikja stoðir fjölskyldunnar, auka álögur og minnka svigrúm heimilanna til að láta enda ná saman.

Virðulegi forseti. Fjárlögin fyrir árið 2026 eru kynnt sem aðhaldssöm og stöðug en þegar nánar er að gáð kemur í ljós mikill útgjaldavöxtur, vaxandi launakostnaður og tilfærslur sem þyngja útgjaldagrunn ríkisins, vaxtakostnaður sem étur upp svigrúm til forgangsmála, forgangsröðun sem er óljós, m.a. í stórum málaflokkum á borð við vegagerð, heilbrigðismál og húsnæðismál, markmið um að styðja við baráttu gegn verðbólgu sem stangast á við tölurnar sjálfar. Við í Sjálfstæðisflokknum viljum ríkisfjármál sem byggjast á festu, skýrri forgangsröðun og raunverulegu aðhaldi, aðhaldi sem sést í tölunum en er ekki bara í orði. Það er vandasamt að reka ríkissjóð og það er ljóst að hver sem situr við stýrið hverju sinni er með bugðóttan veg fyrir framan sig. (Forseti hringir.) Forystufólki ríkisstjórnarinnar hefur verið tíðrætt um að þau séu mætt með plan, sleggju og alls konar önnur verkfæri (Forseti hringir.) og að þau muni ganga hratt og örugglega til verka til að ná hér niður verðbólgu. Lítið hefur farið fyrir þessum verkfærum.