fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Já, það er náttúrlega alveg ótrúlega mikilvægt að við séum í fyrsta lagi ekki feimin við að tala um öryggis- og varnarmál. Í öðru lagi verðum við að taka á þessu af ábyrgð og festu. Nákvæmlega eins og hv. þingmaður sagði verðum við að vera ábyrg, trúverðug og traustsins verð sem bandamaður. Ég tel að það hafi tekist bærilega á síðustu árum. Ég vil sérstaklega draga það fram að við ætlum að halda því áfram. Auðvitað eru aðstæður nú öðruvísi en áður sem knýr okkur enn frekar til að efla og auka öryggi okkar og varnir.
Aðeins varðandi GIUK-hliðið, af því að hv. þingmaður nefndi það áðan, þá er til að mynda gistiríkjastuðningurinn — við erum að leggja okkur fram um að vera framúrskarandi gistiríki — okkar framlag til fælingarmáttar á GIUK-hliðinu, það er hluti af því. Og við sjáum að það er aukin eftirspurn af hálfu annarra aðildarríkja NATO að koma hingað, nýta sér þá þjónustu (Forseti hringir.) sem við höfum og þá aðstöðu sem við höfum. Ég finn það líka að það er aukinn þungi á vettvangi NATO, hvort sem það er hjá utanríkis- eða varnarmálaráðherrum, (Forseti hringir.) og fókusinn er líka að fara á norðurslóðir. Ég ætla ekki að segja að við höfum verið ein en ég fagna því að skilningur er að aukast á vægi norðurslóða og (Forseti hringir.) ekki síst þessum áhuga Rússa á norðurslóðum sem við verðum að vera með mjög vakandi auga á.
(Forseti (HildS): Forseti minnir á að ræðutími er í fyrri umferð tvær mínútur og í hinni seinni ein mínúta.)