fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Við þingmenn, þvert á alla flokka, samþykktum þingsályktunartillögu á síðasta þingi. Hún er líka ákveðið leiðarljós fyrir okkur. Við samþykktum hana öll hér. Það er alveg ljóst að Ísland fordæmir framgöngu Hamas. Það er alveg ljóst að við tökum undir með forystufólki í Palestínu að Hamas eigi ekki að koma að uppbyggingu stjórnvalda í Palestínu. Mér leiðist alltaf þessar krækjur, að reyna að gera allan stuðning sem við erum að reyna að koma til fólksins á Gaza tortryggilegan og segja: Þetta er allt saman Hamas-liðar. Við fordæmum framgöngu Hamas en við getum ekki látið ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs, og sérstaklega Gaza-svæðinu, vera eins og það er. Það er bara ekki hægt. Við erum ekki bara búin að styrkja UNRWA á svæðinu heldur fleiri samtök eins og ég gat um áðan og það eru fleiri leiðir sem Ísland hefur notað til þess að koma til aðstoðar á svæðinu og mér finnst vont þegar verið er að dylgja um að við séum að styrkja Hamas. Þvert á móti höfum við sagt það skýrt að það eigi að leysa úr haldi alla gísla tafarlaust, skilyrðislaust, og framtíðin í Palestínu er ekki með Hamas. (Forseti hringir.) En framtíð Palestínu verður líka að vera með fólki. Eins og aðstæður eru núna er Ísraelsher að koma í veg fyrir að það verði fólk sem geti lifað á Gaza, ekki nema bara að það sé ætlunin að það sé þeirra fólk. (Forseti hringir.) Ég er ekki sammála því af því að ég styð eindregið tveggja ríkja lausn og við erum að vinna að því. (SDG: Ráðherra svarar ekki spurningunni.) — Ég er að svara spurningunni. (SDG: Nei. )Þá verður hann bara einfaldlega að orða … (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Það verður að brýna fyrir hv. þingmönnum að koma með skýrar spurningar en ekki bara einhverjar dylgjur.