fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Bara svo ég haldi áfram þá hefur tekist vel til varðandi það að CERT-IS hafi komið inn í ráðuneytið. Við stefnum að því að fjölga núna um líklega 15 manns, alla vega tíu, við stefnum að því að þeir verði 15 fyrr en síðar. Það sem CERT-IS er að vinna að — efling sveitarinnar fellur líka vel saman við varnar- og öryggismál og stefnuna sem er í mótun, hjálpar til við það regluverk allt og ekki síður á hinu borgaralega sviði. Tenging við ráðuneytið eflir m.a. það sem kemur fram í þeirri skýrslu sem verður birt á morgun en við ætlum að auka, eins og ég gat um áðan, vöktunar- og greiningargetu CERT-IS með því að styrkja eftirlitið þannig að við getum tekist á við þær ógnir sem eru af hálfu annarra ríkja, óvinveittra ríkja m.a., ef það er hægt að orða það þannig. (Forseti hringir.) En í heildina séð er einhvern veginn allt á fullu. Það er allt að gerast, eins þungt og það er að viðurkenna að það er út af því að aðstæður eru erfiðar í heiminum. (Forseti hringir.) Við Íslendingar getum ekki leyft okkur einfeldni heldur verðum við að taka á þessum málum af festu og ábyrgð.