fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og eins og hér hefur komið fram er þetta sá málaflokkur þar sem í prósentum talið útgjaldaaukningin er hvað mest. En við sjáum líka að þar fer auðvitað ansi stór hluti í varnartengdan stuðning við Úkraínu. Ég ætla bara að leyfa mér að nota þetta tækifæri og þakka hæstv. ráðherra fyrir að standa við þá skuldbindingu sem er auðvitað pólitísk og er raunverulegt framlag og ætti að vera sjálfsagt en er það ekki og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það og ríkisstjórninni. Við erum, eins og áður kom fram, að fara að kynna afurð þverpólitískrar þingmannanefndar um inntak og áherslur í varnarstefnu fyrir Ísland sem er þá í fyrsta skipti sem það er gert og er auðvitað stórmál og er ákveðinn grunnur. Hún er nokkuð breið og ég held að við munum þurfa að taka margar stórar ákvarðanir út frá henni vegna þeirrar stöðu sem upp er komin. En í samhengi við þær ákvarðanir sem hafa verið teknar um að stefna að 1,5% í innviðatengd varnarútgjöld þá eru það auðvitað háar fjárhæðir í íslensku samhengi. Mig langaði aðeins að fá hugleiðingar ráðherra, ég veit að þetta er ekkert um það í fjárlögunum og svo sem ekki í fjármálaáætlun heldur, en þetta eru stórar fjárhæðir. Það mun kalla á hagræðingu. Vonandi kemur betri tími til að ræða það en ég held að þar muni reyna á okkur að hugsa stórt í því. Þá er ég annars vegar að hugsa bara um raunverulega hagræðingu og einhvers konar umbreytingu og jafnvel sölu á eignum til þess að umbreyta í fjárfestingar sem við munum þurfa að fara í til að standa vörð um okkar öryggi og vera raunverulegir þátttakendur í veröld sem er bara að hreyfast til verri vegar ofboðslega hratt og sem ég held því miður að sé að fara að versna en ekki batna.