fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að við þurfum að hugsa stórt og leyfa okkur líka að taka ákveðnar prinsippákvarðanir og standa með þeim eins og hv. þingmaður gerði í sinni utanríkisráðherratíð. Það er ekkert auðvelt að sannfæra fólk hér heima því að ég hef fengið þá spurningu sem hv. þingmaður hefur örugglega líka fengið þegar hún var ráðherra: Af hverju erum við að gera þetta? Af hverju erum við að standa með Úkraínu, svona mikið, þetta eru svo miklar fjárhæðir? Og þetta eru miklar fjárhæðir. Það er út af því að við viljum í fyrsta lagi vera verðugur bandamaður innan bandalagsins en líka að við sýnum því skilning að Úkraína og fólkið þar er að standa vörð fyrir okkur um frelsið, um lýðræðið og allt þetta sem við stöndum fyrir og eru okkar grunngildi.
Já, skýrslan verður kynnt á morgun og ég vil þakka þeim sem að henni stóðu, ég sé að það eru margir hér inni sem voru í þessum hópi, og vil beina strax þakklæti til ykkar. Ég held að það sem má ekki gerast og ég beini því til sjálfrar mín er að falla ekki í einhverja pólitíska freistni og segja: Takið þetta, og ætla bara að gera þetta ein. Það er ekki þannig. Varnar- og öryggismál eru ekki bara skammtímamál heldur langtímamál og það er svo mikið lykilatriði að við náum sem mestri sátt í því. Þess vegna vil ég sjá að hópurinn vinni áfram með mér og fagfólkinu í ráðuneytinu til þess að kortleggja þetta og með dómsmálaráðuneytinu líka, ekki spurning, sem er með m.a. Landhelgisgæsluna, lögregluna fleira, við kortleggjum það saman hvernig við náum þessum 1,5% í varnartengd útgjöld næstu tíu árin. Það mun kosta það að við þurfum að búa til eitthvert skapalón sem, ég verð að segja, verður að vera miðað út frá vörnum og öryggi en ekki út frá þörfum stofnana eða kjördæma. Þið vitið hvað ég er að fara. Við föllum ekki í þá freistni að skófla öllu þarna inn til að ná einhverjum markmiðum heima í héraði (Forseti hringir.) heldur verðum við alltaf að vera með augun á boltanum og það er að tryggja öryggi Íslands, vera verðugur bandamaður og efla enn frekar varnir. Þetta verkefni tel ég mjög mikilvægt að við náum samstöðu um og vinnum saman. Ég lýsi mig alla vega reiðubúna til þess.