157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:44]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég mun nú gera grein fyrir þeim málefnum og verkefnum sem heyra undir ráðuneyti mitt, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, í fjárlagafrumvarpi 2021. Í fjárlagafrumvarpinu birtist fullfjármagnað nýtt kerfi örorkulífeyris sem að meðaltali eykur tekjur öryrkja um 50.000 kr. á mánuði. Loksins fá öryrkjarnir þær kjarabætur sem þeir hafa beðið eftir í átta ár. Nýtt kerfi hvetur til ríkari atvinnuþátttöku og grimm tekjuskerðingarhlutföll eru afnumin og króna á móti krónu skerðing heyrir sögunni til. Ég legg ekki meira á ykkur. Einfaldara kerfi sem styður enn frekar við uppbyggilega endurhæfingu þeirra sem eru með skerta starfsgetu. Greiðslur almannatrygginga munu fylgja kjaraþróun á vinnumarkaði með tengingu við launavísitölu. Áfram verður tryggt að breytingin verður aldrei lægri en sem nemur vísitölu neysluverðs. Við segjum stopp við vaxandi kjaragliðnun undangenginna ára. Um 65.000 einstaklingar munu njóta góðs af breytingunni. Við munum tryggja að öryrkjar sem eiga rétt á aldursviðbót fái hana líka við töku ellilífeyris og verður hún tryggð út ævina. Við munum tæplega tvöfalda frítekjumark ellilífeyris á kjörtímabilinu. Það samsvarar 720.000 kr. lífeyristekjum á ári án skerðinga ellilífeyris. Hafið er stórátak í fjölgun hjúkrunarrýma með uppbyggingu hjúkrunarheimila um land allt. Markmiðið er að útrýma öllum biðlistum fyrir lok kjörtímabils um leið og við munum losa um þann flöskuháls sem útskriftarvandi Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri hefur verið. Við það mun heilbrigðiskerfið okkar eflast og styrkjast til muna.

Forseti. Við ætlum að tryggja öllum í samfélaginu öruggt þak yfir höfuðið. Þetta er mikil áskorun en með öflugri samvinnu allra sem að þurfa að koma þá munum við ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Við ætlum að byggja og við ætlum að byggja meira og meira. Við munum einfalda regluverk og auka skilvirkni í góðu samstarfi við sveitarfélög og óhagnaðardrifin leigufélög. Verja á 7,5 milljörðum kr. í stofnframlög á næsta ári og 4 milljörðum kr. til hlutdeildarlána. Við ætlum að styrkja afkomuöryggi fólks í fæðingarorlofi. Hagur fjölburaforeldra verður bættur og þeirra sem veikjast í kjölfar fæðingar eða á meðgöngu. Einnig tryggja fjárlögin fjármagn til að bæta hag foreldra sem missa maka með því að tryggja þeim rétt til sorgarleyfis og í samræmi við frumvarp mitt sem Alþingi samþykkti í vor. Við munum einnig tryggja að breytingar á fæðingarorlofskerfinu gangi til allra óháð fæðingardegi og mun það eiga við um hækkunina á þaki fæðingarorlofsgreiðslna næstu áramót.

Við ætlum að skapa lagaumgjörð utan um öryggisvistun og tryggja að þeir sem eiga að sæta öryggisráðstöfunum séu vistaðir í viðeigandi úrræðum. Um er að ræða málaflokk sem hefur lengi verið á hrakhólum og við segjum: Hingað og ekki lengra. Við ætlum að byggja sérhæft húsnæði til að mæta þörfum þessa fólks og þegar hafa verið markaðir 2 milljarðar kr. í fjárlögum ársins 2026 til verkefnisins.

Það þarf að ná tökum á verðbólgunni og ráðast í hagræðingar til að auka skilvirkni í ríkisrekstrinum. Með því að þróa þjónustu áfram við umsækjendur um alþjóðlega vernd má draga verulega úr kostnaði og er gert ráð fyrir að útgjöld lækki um 3 milljarða kr. á árinu 2026 og munar þar mest um meiri skilvirkni í afgreiðslu umsókna.

Við viljum gefa fólki tækifæri til að vera virkir þátttakendur á vinnumarkaði. Aðgerðir til að draga úr langtímaatvinnuleysi hafa skilað miklum árangri og reynslan sýnt að snemmtæk íhlutun skiptir þar sköpum. Með því að setja meiri kraft í þær aðgerðir og með því að auka virkniskyldu, efla eftirlit og breyta lágmarksskilyrðum fyrir greiðslu bóta er áætlað að spara um 700 millj. kr. á næsta ári. Á tímabili fjármálaáætlunar er svo áformað að stytta tímabil atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18 og þá verður til frekari sparnaður.

Ég hef frá því að ég tók við embætti lagt áherslu á að við förum vel með almannafé og hef því ráðist í yfirgripsmiklar hagræðingaraðgerðir. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir hagræðingu í mínu ráðuneyti upp á 5 milljarða og 386 millj. kr. Árið 2027 er upphæðin komin í tæpa 10,2 milljarða, árið 2028 í 9 milljarða og 603 millj. kr., árið 2029 í 13 milljarða og líka árið 2030, tæplega 13,5 milljarða kr. Samtals hagræðing upp á 51,6 milljarða kr. á árunum 2026–2030.

Ég hef nú farið yfir það helsta frá ráðuneytinu mínu sem um er rætt í fjárlagafrumvarpi ársins 2026 og ég bind vonir við að eiga í farsælu samstarfi við hv. þingmenn á komandi þingvetri.