157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:56]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir síðara andsvar. Jú, ég talaði um jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóðanna og bryddaði einnig á því ásamt víxlverkuninni. Hvoru tveggja er áhyggjuefni og það er mjög ósanngjarnt, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, að vinnandi fólk beri skarðan hlut frá borði að þessu leyti vegna þess að skjólstæðingar lífeyrissjóðs koma úr stéttum þar sem hættan á vinnuslysum er meiri og vinnan þess eðlis að líkaminn slitnar fyrr á æviskeiðinu svo að fólk lendir fyrr á örorku. Á sínum tíma, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson væntanlega veit, greip ríkið til þess ráðs að bæta þeim lífeyrissjóðum upp þann mismun sem þeir þurftu að taka á sig umfram aðra lífeyrissjóði vegna þyngri örorkubyrði. En eðlilegast væri, og ég endurtek það sem ég sagði áðan, að lífeyrissjóðirnir myndu sameinast um þetta verkefni og jafna byrðina sín á milli innbyrðis, enda eru lífeyrissjóðirnir hluti af samtryggingu þjóðarinnar og bera þar mikla ábyrgð.