fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Á þingmálaskrá er boðað mál um að leggja til að hámarkstími atvinnuleysisbóta verði styttur úr 30 mánuðum í 18. Í fjárlagafrumvarpinu er í sjálfu sér ekkert sérstaklega tekið á því hvernig sá sparnaður kemur til en þar má þó finna eftirfarandi markmið, með leyfi forseta:
„Greining á þjónustuþörf einstaklinga án atvinnu þannig að unnt sé að veita einstaklingsmiðaða og markvissa aðstoð með það að markmiði að draga úr langtímaatvinnuleysi.“
Samkvæmt mælaborði Vinnumálastofnunar var fjöldi þeirra sem höfðu verið lengur en 12 mánuði á atvinnuleysisskrá 1.500 í síðasta mánuði, eða um 20% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Rannsóknir hafa sýnt að atvinnuleysi, sérstaklega atvinnuleysi sem stendur lengur en sex mánuði, hafi mjög neikvæð áhrif á heilsu og líf fólks. Lífsgæði eru verri hjá þeim hópi en öðrum og það er til mikils að vinna að sem fæstir verði atvinnulausir til lengri tíma. Ég styð eindregið það markmið að veita einstaklingum einstaklingsmiðaða þjónustu byggða á greiningum til að koma til móts við þennan hóp. Það er mikilvægt að vinna út frá hæfni og getu en ekki skorti eins og hæstv. félagsmálaráðherra hefur sjálf sagt. Því langar mig til að spyrja hvort gert sé ráð fyrir auknum fjármunum í aðgerðir fyrir þennan hóp sem hefur setið fastur á atvinnuleysisskrá, þ.e. hvort þeir fjármunir sem sparast við að stytta hámarkstíma bóta verði nýttir í þessi verkefni eða hvort framlögin lækki. Einnig vil ég spyrja hvernig ráðuneytið mun fylgja eftir árangrinum og grípa inn í ef ljóst er að ekki náist að fækka þeim sem núna eru langtímaatvinnulausir.