fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afar góða fyrirspurn og já, ég heyrði þessar fregnir og ég er þakklát fyrir Samtök iðnaðarins sem hafa nú sannarlega staðið vaktina með okkur og verið ötul í að fylgjast með því sem fram fer á fasteignamarkaðnum. Það var vinnustofa í mínu ráðuneyti núna í síðustu viku í Iðnó þar sem var þéttsetinn salur allra hagaðila sem koma að uppbyggingu fasteigna í landinu; lífeyrissjóðir, byggingarverktakar, seðlabankastjóri, fjármálaráðherra og bara allir hagaðilar og þar á meðal formaður Samtaka iðnaðarins. Vinnustofan var frábær og ég vænti þess að innan örfárra vikna munum við vera komin með heildstæða yfirsýn yfir það hvernig við ætlum að ráðast að rótum vandans. Við vitum líka að um 1.900 eignir eru óseldar nú í dag, nýbyggingar, það eru eignir sem að hluta til eru að ganga í ákveðna kaupendur, það eru dýrar eignir á sérstökum þéttingarreitum hér og það er bara ákveðinn markhópur sem bæði hefur efni á þessum íbúðum og vill yfirhöfuð eiga þar heima. Þannig að við vitum að skekkjan á markaðnum núna er sú að það er mikil vöntun á minni, ódýrari og hagkvæmari íbúðum fyrir fyrstu kaupendur og jafnvel fólk sem vill minnka við sig og fara í minna og hagkvæmara húsnæði. Það vantar þessar eignir og þangað erum við að líta. Ég lít björtum augum á það samkomulag sem við höfum gert við Reykjavíkurborg sem hefur sagt að við fáum Úlfarsárdal til að fara að hefja framkvæmdir, risauppbyggingu blandaðrar byggðar upp á um 10.000 íbúðir. Það eru fleiri lóðir og fleiri lönd hér innan t.d. Stór-Reykjavíkursvæðisins þar sem er fyrirhugað að fara að ráðast í framkvæmdir. En þetta viljum við gera í samtali og samvinnu við alla hlutaðeigandi sem geta aðstoðað okkur og komið að málum og ég er bara mjög bjartsýn á það að innan skamms (Forseti hringir.) verði sannarlega sýnilegt hvað ríkisstjórnin er að gera jákvætt í málinu.