157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:29]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvað lýtur að ríkiseignum þá get ég upplýst hv. þingmann um það að ég óskaði strax eftir því að athuga hvort við gætum flýtt t.d. uppbyggingu hjúkrunarrýma eða jafnvel félagslegs húsnæðis, reynt að uppfylla félagslegu húsnæðisþörfina með því að nýta kannski ríkiseignir sem, eins og hv. þingmaður bendir á, er allnokkuð til af. En því miður verð ég að segja að ég hef ekki heildaryfirsýn en flestar þessara eigna eru annaðhvort — við erum að hagræða og flytja jafnvel ríkisstofnanir inn í einhverjar af þessum fasteignum þar sem ríkið hafði áður verið að leigja eignir. Síðan hefur komið upp, bæði eins og í gömlu Tryggingastofnun og fleiri stöðum, bara endalaus mygla og alls konar og eitthvað heilsuspillandi og þá þyrfti að ráðast í mjög svo umfangsmiklar og kostnaðarsamar úrbætur. Þetta er búið að vera virkilega til skoðunar og einnig til skoðunar þær lóðir sem ríkið á t.d. í borginni og það hefur verið í góðu samtali við borgina að við gætum farið að skoða það að flýta uppbyggingu. Við höfum verið að tala um litlar einingaíbúðir og alls konar sem hefur verið í kortunum, eins og ég býst við að hafi líka verið hugmyndafræði hjá fyrri ríkisstjórn, til að reyna að anna þörfinni og reyna að tryggja hlutina.

En hvað lýtur að örorkunni þá er það góða við hana í sambandi við aukinn kostnað að við erum að auka virkni. Þetta nýja kerfi byggir á þessari svokölluðu hlutaörorku þar sem við erum að gefa einstaklingi kost á því, ef hann treystir sér til, að fara í vinnu og hann mun í rauninni, ef hann kemst inn á hlutaörorku, geta aukið tekjur sínar allverulega. Hann fær greiddar 82% af hinni eiginlegu örorku um leið og hann getur unnið sér inn fyrir 350.000 kr. á mánuði. (Forseti hringir.) Ég kem með meira seinna. Ég hef voðalega mikið yndi af því að ræða þetta mál.