157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ágætu spurningar. Það liggur alveg ljóst fyrir að ábyrgðin á heildarumfangi veiða mun áfram byggja á vísindalegum grunni og verður alfarið á hendi atvinnuvegaráðherra eins og verið hefur. Það eru einungis útfærslur á ákveðnum liðum, sem snúa að hinum svokallaða 5,3% potti, sem færast á milli ráðuneyta, ekki heildarumfangið. Í öðru lagi spyr hv. þingmaður um gjald fyrir ferðaþjónustu en eins og hann hefur alveg örugglega áttað sig á er ekki stafur um það í þessum fjárlögum. Sú vinna er í gangi í nánu samstarfi við hagsmunaaðila og ég er sannfærður um að atvinnuvegaráðherra mun kynna stöðu hennar um leið og það liggur nákvæmlega fyrir hver niðurstaðan verður.