fjárlög 2026.
Forseti. Mig langaði að fá að nota tækifærið og eiga orðastað við hæstv. fjármálaráðherra og kannski spyrja út í málaflokk atvinnuvegaráðherra vegna þess að þetta blandast nú allt saman. Nú eru miklar breytingar eftir nýsamþykkt lög um veiðigjald. Það er mikil óvissa og þetta getur haft mikil áhrif á ríkisreikninginn, hvað gerist. Þess vegna langar mig að spyrja, af því að ég veit að hæstv. ráðherra þekkir það vel að áður var ríkissjóður með afkomureglu, skuldareglu og skuldalækkunarreglu: Er það ekki rétt að nú í sumar hafi skuldalækkunarreglunni verið hent út en skuldareglan sé enn inni? Þar segir að skuldir þurfi að vera lægri en 30% af vergri landsframleiðslu. Við vitum að í fjárlögum 2026 verður það ekki svo og það verður mikil óvissa með stóra liði, tekjur og gjöld. Mig langaði að fá að spyrja hvort skuldaþróunaráætlunin sem á að vera til — er búið að vinna hana? Ég finn hana ekki. Hvar myndi ég finna þessa áætlun? Ég held að það væri gott að hafa hana til viðmiðunar af því að það er verið að bæta í lán og þessir stóru póstar sem eru hjá atvinnuvegaráðherra munu hafa mikil áhrif á þetta allt saman.