fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir aðra alveg ljómandi góða spurningu en get fullvissað hana um að fjárlögin eru vandlega innan laga um opinber fjármál, þ.e. stöðugleikareglan heldur. Ef hún hefur áhuga á smáatriðum í þeim útreikningum er mér bæði ljúft og skylt að fara yfir það með henni en ekki gefst tími til þess núna. Ég er ekki sammála hv. þingmanni um stöðugleikaregluna. Það sem stöðugleikareglan gerir fyrst og fremst er að koma í veg fyrir að góðærishagnaði sé eytt í viðvarandi útgjöld. Ef þú ætlar að auka viðvarandi útgjöld ríkissjóðs þarf tekjuöflun að koma á móti. Það er aðalatriðið. Stóra vandamál Íslands hefur alltaf verið sveiflurnar sem eru í ytri skilyrðum, hagvöxtur sem er sveiflukenndari en í stærri hagkerfum, ekki vegna þess að Íslandi sé endilega eitthvað verr stýrt heldur einfaldlega bara vegna þess að það eru færri undirliggjandi þættir sem leggja til hagvaxtar (Forseti hringir.) á Íslandi en í öðrum löndum. Eðli málsins samkvæmt verða þeir sveiflukenndir. Það hefur áhrif á ríkisfjármálin (Forseti hringir.) og það er auðveldara að hækka en að lækka.