157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:01]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Forseti, þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæt svör. Eins og við vitum hefur bændum fækkað verulega á undanförnum árum og eru nú kynslóðaskipti víða til sveita. Því er það mikilvægara en nokkru sinni fyrr að ég tel að vel takist til við gerð þessara nýju búvörusamninga. Ungt fólk þarf að sjá raunveruleg tækifæri og afkomumöguleika í búskap. Það er skylda stjórnvalda að leggja sitt af mörkum til að tryggja framtíð greinarinnar með gerð nýrra búvörusamninga. Sauðfé hefur fækkað mikið á síðustu áratugum og neysla á kindakjöti dregist saman og hvíta kjötið notið meiri vinsælda. Það er mikilvægt við gerð nýrra búvörusamninga að það verði horft til nýsköpunar í markaðssetningu á lambakjöti. Ég tel að það séu mikil tækifæri fyrir bændur og stjórnvöld, og þá neytendur líka, að horfa á starfsskilyrði landbúnaðar í heild sinni. Það er hagur allra landsmanna, að ég tel, að á Íslandi verði öflugur landbúnaður og ég treysti ríkisstjórninni til að gera allt sem í hennar valdi stendur(Forseti hringir.) til að svo megi verða.