fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra, nú atvinnuvegaráðherra, fyrir yfirferðina og að vera hér til svara fyrir þetta. Mig langar að byrja aðeins að ræða við hæstv. ráðherra, og hann ræður svo sem hvort hann svarar sem fjármálaráðherra eða atvinnuvegaráðherra, um stöðu útflutningsgreinanna hjá okkur. Þær hafa aldrei verið mikilvægari fyrir okkur þar sem viðskiptajöfnuðurinn er að þróast í öfuga átt og ríkisstjórnin hefur verið dugleg að annaðhvort að hækka álögur á útflutningsgreinarnar eða koma fram með áform um að hækka álögur á útflutningsgreinarnar sem dregur úr fjárfestingargetu þeirra, dregur úr samkeppnishæfni þeirra. Ég hefði einmitt haldið að þetta ætti að vera öfugt, að við ættum að reyna að hjálpa þeim, auka fjárfestingargetuna, auka verðmætasköpunina í útflutningi til að laga viðskiptajöfnuðinn. Þarna er ég nú bara að fara yfir ferðaþjónustuna sem á mögulega von á komugjöldum eða einhvers konar gjaldtöku í ferðaþjónustu. Við höfum heyrt frá hæstv. utanríkisráðherra að hún hefði ákveðið að setja ekki öll málin á þingmálaskrána þó þau væru. Þannig að við vitum ekkert hvað við getum fengið, það stendur ekki hérna. Það er kílómetragjaldið sem er bara landsbyggðarskattur þar sem bílaleigubílarnir munu ekki dreifast jafn mikið um landið og það skerðir samkeppnishæfni út af hærri verðteygni. Það eru innviðagjöld vegna skemmtiferðaskipa sem lækkuðu nú minna en var búið að boða. Það er lagareldið. Það er náttúrlega sjávarútvegurinn sem við höfum rætt mikið hér. Svo langar mig aðeins að heyra hver áformin eru um nýsköpun og þróun og skapandi greinar en þar hefur útflutningurinn aukist mest undanfarin ár. Ég hef miklar áhyggjur af þessu og hvað það er lítið um þetta í fjárlagafrumvarpinu.