fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég get nú að einhverju leyti létt á hjarta hans. Ég held að það dugi okkur að hafa áhyggjur af fjárlagafrumvarpi þessa árs, þó að spekúlasjónir um framtíðarþróun og einhverjar útfærslur hugmynda hafi lengi verið í bígerð, m.a. meðan hv. þingmaður var í meiri hluta, um einhvers konar gjald í ferðaþjónustunni. En það er kannski fyrst og fremst hátt raungengi sem er full ástæða til að hafa áhyggjur af og sem á einhvern hátt kemur dálítið á óvart og er alltaf áhættuefni fyrir íslenskar útflutningsgreinar. Það eru engin önnur fyrirhuguð gjöld og engin í þessu fjárlagafrumvarpi sem snúa að neinu öðru heldur en margumræddu veiðigjaldi, sem er raunar athyglisvert að velta fyrir sér að í síðustu fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar var gert ráð fyrir að það yrði hækkað umtalsvert. Það er áfram meginstefna þessarar ríkisstjórnar að byggja íslenskum atvinnugreinum skýran, góðan ramma einfaldra skilvirkra reglna þannig að þær geti haldið áfram að vaxa hér eftir sem hingað til.