fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það vakti nokkra undrun hjá mér þegar ég las í fréttum í sumar að hið svokallaða byggðakerfi í sjávarútvegi hefði verið fært úr atvinnuvegaráðuneytinu yfir í innviðaráðuneytið. Ég hefði áhuga á að heyra hjá hæstv. fjármálaráðherra sem trúlega þekkir málið vel hvaða rök stóðu til þess að flytja úr atvinnuvegaráðuneytinu og yfir í innviðaráðuneytið málefni strandveiða og allra þeirra veiða sem falla undir þetta svokallaða byggðakerfi, sem eru almennur og sérstakur byggðakvóti, línuívilnun, skel- og rækjukvótar, einhverjar frístundaveiðar auk strandveiðanna. Af hverju var þetta fært? Strandveiðarnar voru náttúrlega mikið til umræðu undir lok síðasta þings og fram á sumar og ég heyrði ekki betur en að strandveiðum sérstaklega hefði verið mikið hampað hér sem mikilvægri atvinnugrein og það væri mikilvægt að byggja undir strandveiðarnar. Það kom mér því á óvart að þessar veiðar hefðu verið færðar úr ráðuneyti atvinnuveganna og undir innviðaráðuneytið og það fékk kannski meira á sig þann brag að það væri þarna verið að senda þau skilaboð að strandveiðarnar væru einhvers konar frístundaveiðar. Það væri áhugavert hvort hæstv. ráðherra gæti aðeins upplýst um rökin fyrir þessu.
Svo er hitt sem líka væri áhugavert að vita, hvort hæstv. atvinnuvegaráðherra sé búinn að útfæra það hvernig verði uppfyllt loforðið um 48 daga strandveiðitímabil sem ekki var uppfyllt núna í sumar.