157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir ágætar spurningar. Nú hafa byggðamálin um langt skeið heyrt undir innviðaráðuneytið og hin pólitíska framsetning og réttlæting. 5,3% pottanna er að koma til móts við þær neikvæðu afleiðingar sem eru eðlilegar afleiðingar af hagræðingu í sjávarútvegi. Þess vegna fer það raunverulega mjög vel að þessi pottur sé tengdur beint við það ráðuneyti sem fer með byggðamál. Ég tek ekki undir það sem hv. þingmaður gefur í skyn að þær aðgerðir sem hefur verið gripið til í byggðamálum séu ekki einhvern veginn alvöruatvinnuvegir. Ég kannast ekki við það. Það hlýtur á endanum alltaf að vera markmið að byggja upp sjálfbærar, og þá meina ég sjálfbærar í bæði umhverfis- og efnahagslegu samhengi, atvinnugreinar eins víða um land og mögulegt er. Markmið aðgerða er að jafnaði að veita einhvern stuðning til að gróður geti fengið skjól til að spretta svo af honum geti sprottið lífvænlegur atvinnuvegur eða atvinnuvegir, þannig að þetta er ekki úr takti við þá stefnu sem Ísland hefur í þessu skyni rekið lengi.