fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Burt séð frá því hvar þessir byggðakvótar eða þetta byggðakerfi á heima í Stjórnarráðinu, þá hlýt ég að ganga út frá því að eftir sem áður sé það hæstv. atvinnuvegaráðherra, sem úthlutar kvótum. Þess vegna endurtek ég spurningu mína sem ekki var svarað um hvort það liggi ekki fyrir í dag hvernig hæstv. atvinnuvegaráðherra ætlar að koma til móts við síendurtekin loforð, bara síðast í dag, um 48 daga strandveiði á næsta sumri, svona í ljósi þess að það tókst ekki að uppfylla það í sumar vegna þess að hæstv. atvinnuvegaráðherra, að mínu mati og ég held að það liggi nú bara fyrir miðað við niðurstöðuna, undirbjó málið ekki nógu vel, kom allt of seint með það og hafði greinilega ekki hugsað málið. Ég vænti þess að menn hafi notað sumarið til að að huga að þessum málum og þess vegna endurtek ég spurninguna: Liggur það fyrir hvernig menn ætla að uppfylla loforð um 48 daga strandveiði?