fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir endurteknar spurningar og biðst afsökunar á að hafa ekki komið henni að í fyrra svari. Spurningin byrjaði á tilfærslunni sem þýðir auðvitað að þetta heyrir ekki lengur undir atvinnuvegaráðuneytið. En það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að úthlutun aflaheimilda er á hendi atvinnuvegaráðuneytis og þess vegna liggur fyrir hvert heildarumfang þessa byggðakerfis er, þessi 5,3% af heildarúthlutun í þorskígildum. Útfærslunni verður hv. þingmaður að bíða eftir þar til innviðaráðherra leggur hana fram.