fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðilegar spurningar um mál sem skipta alveg gríðarlega miklu. Við þekkjum það auðvitað öll að 70-80% þjóðarinnar eru meira og minna hér á meðan afgangurinn er á gríðarlega stóru landsvæði úti um allt land og það eru áskoranir á öllum sviðum, ekki síst á sviði skóla og menningar. Ný tækni hefur vissulega hjálpað okkur en við verðum líka að skapa betri skilyrði með staðnámi og öðru slíku úti um allt land. Það höfum við verið að gera. Í vor undirritaði ég t.d. samning við Háskóla Íslands og Fjarðabyggð, t.d. um menntasetur á Eskifirði, sem einbeitir sér að menntunarmálum. Nýverið var gerður samningur milli Háskóla Íslands og skólans á Hallormsstað og svo kom hv. þingmaður inn á samstarfið milli HÍ og Hóla sem mynda þá háskólasamstæðu. Báðir aðilar eru að njóta þess í ríkulegum mæli og engin áform um að störf eða starfsemi flytjist hingað heldur þvert á móti. Það eru ákjósanlegar aðstæður til að stunda rannsóknir og vísindastörf og störf í menntakerfinu á þessum landbúnaðar- og fiskeldisþáttum þarna norður frá og við munum standa við áform sem þar hafa verið á borðinu, m.a. að tilstuðlan ríkisstjórnar hv. þingmanns.
Varðandi menninguna þá er það í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að auka aðgengi að menningu óháð efnahag og búsetu og við erum sannarlega byrjuð á því. Við erum að fara að gera menningarsamninga við ákveðna lykilstaði til að tryggja að aðgengi verði í gegnum þá. Við erum að fara að formgera og bæta við samninga um þekkingarmiðstöðvarnar sem skipta gríðarlega miklu máli og við erum með minni verkefni, eins og List fyrir alla, þar sem við ætlumst til að fólki sé sinnt um allt land. Við þurfum auðvitað að hafa okkar stóru, sterku opinberu stofnanir hér, þær eru hér. En ég er sammála (Forseti hringir.) hv. þingmanni um að það þarf líka að færa menninguna heim í hérað.