fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er rétt að svara þá strax, svo að ég gleymi því ekki, að verkefni tengd þessum fyrirhuguðu breytingum birtast ekki í fjárlögum þessa árs en við höfum þó nægt ráðrúm til þess að styðja við þau samtöl sem hafa átt sér stað og við höfum verið að gera það. Við erum ekki beinn þátttakandi í þeim í sjálfu sér. Ef við tökum t.d. háskólasamstæðuna fyrst þá hef ég alveg sagt það opið að mér finnst að við eigum að skoða það víðar heldur en bara á milli HÍ og Hóla. Mér finnst áhugavert að skoða með hvaða hætti hægt er að ná samlegð milli HÍ, Hóla, Landbúnaðarháskólans, Bifrastar, rannsóknarstofnana á Keldum og annað slíkt, til þess að skapa ákjósanlegri og betri vettvang. Við megum ekki gleyma því að við erum lítið land sem er í samkeppni við stóran heim og við eigum að þróa okkur yfir í kerfi þar sem háskólarnir hér styrkjast og geta verið í samkeppni við útlönd í staðinn fyrir að vera í sífelldri samkeppni innan lands, jafnvel um sömu námsgreinar og námsbrautir sem nóg aðgengi er að. Þar með er ég ekki að segja að ég ætli að ákveða það. Við hyggjumst leggja fram háskólastefnu þar sem við segjum hvert þjóðin vill stefna, hvert stjórnvöld vilja stefna og hvernig við náum þangað og síðan búum við til hvata til þess að gera kerfið sem burðugast. Varðandi HA og Bifröst þá eru ágætissamtöl þar á milli, því er auðvitað bara stýrt og farið í gegnum það á vettvangi skólanna í augnablikinu. Mér hefur verið haldið upplýstum um málin en í augnablikinu er málið bara heima í héruðunum og er til umræðu þar.