157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[10:49]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið og fyrir að greina frá sinni sýn þegar kemur að háskólastiginu á Íslandi og ég er hjartanlega sammála hæstv. ráðherra að við þurfum að líta meira til þess að íslenskt háskólakerfi er í alþjóðlegri samkeppni og við eigum frekar að horfa til þess en samkeppni milli háskóla hér innan lands. Kannski ekki beint tengt þessu tiltekna fjárlagafrumvarpi en ég vildi fá að nýta tækifærið í seinna sinni og spyrja hæstv. ráðherra hvaða tækifæri hann sér til að efla háskólanám úti um allt land, utan höfuðborgarsvæðisins, en einnig á Akureyri þar sem Háskólinn á Akureyri er jú staðsettur.