fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Já, ég get svarað því strax. Því er til að svara að í þingmálaskránni er einmitt frumvarp um háskóla þar sem ýmsir þættir eru ræddir og nefndir og m.a. er verið að leggja til heimild fyrir háskólana til að leggja á skólagjöld á nemendur utan Evrópska efnahagssvæðisins. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að skólar á Norðurlöndunum eru almennt að gera þetta. Það er viðbúið að við þetta þá hverfi þessar umsóknir alveg en síðan kannski fjölgi þeim eitthvað vegna þess að að við viljum vissulega koma í veg fyrir einsleitni í háskólakerfinu og við viljum fá fjölbreyttan hóp og flóru inn í kerfið og ég held að allir rektorar háskólanna séu sammála um það. Við þurfum t.d. samhliða þessari heimild, ef hún verður samþykkt, að skapa einhverja möguleika til þess að draga hingað afburðanemendur í einhverjum tilfellum og það er heimild í lögum um að ráðherra geti tekið ákveðnar námsleiðir út fyrir sviga. Það getur varðað ýmislegt. Við viljum leggja áherslu á t.d. þessar STEM-greinar, það er mikilvægt fyrir okkur að fá vísindafólk þar. Annað sem ég gæti nefnt er diplómanám í íslensku sem annað tungumál. Það er gríðarlega mikilvægt framboð fyrir t.d. stóra hópa sem eru að þjónusta Landspítalann og mikilvægar stofnanir þannig að við þurfum að skoða þetta vel. En markmiðið er einmitt að setja svona girðingar þarna, já.