fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þótt það hafi ekki komið alveg skýrt fram hvort hann deili áhyggjum mínum af því að það hafi raunverulega tíðkast ákveðin misnotkun í þessu kerfi. Það væri fróðlegt að fá það fram. Hins vegar er hin spurningin um þetta sú að sannarlega eru auðvitað alltaf alþjóðlegir nemendur við háskóla eða hluta af háskólastarfi. Hér á Íslandi náttúrlega stofnum við Háskóla Íslands fyrir Íslendinga og við hugsum að þarna þurfum við að hugsa á íslensku, fræðast á íslensku og vera með ákveðna starfsemi á íslensku og það er mjög mikilvægt fyrir okkar þjóðmenningu. Það er svona upphaflegt markmið háskólans og svo verður náttúrlega mjög mikil, alþjóðleg þróun í öllu háskólastarfi með tíð og tíma. Ég velti því fyrir mér að núna er t.d. fjallað um það af hálfu háskólans að það þurfi að auka hlutdeild nemenda með erlendan bakgrunn í skólanum. Það er jafnvel fjallað um það í viðtölum, ég get vísað í það beint, að það þurfi hreinlega, eins og einn inngildingarsérfræðingur háskólans sagði, að breyta DNA háskólasamfélagsins vegna þess að það var upphaflega hannað fyrir Íslendinga en síðan breytist samfélagið. Hver eru sjónarmið hæstv. ráðherra á þessu sviði? Tekur hann undir það? Ég er alveg hjartanlega sammála því að auðvitað hjálpum við innflytjendum að aðlagast og taka svo þátt í háskólasamfélaginu, en þarf að breyta DNA háskólans til að koma til móts við það? Það er spurning.