fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Nú ætla ég ekki inn á kennarastofu einstakra háskóla eða inn á skrifstofu rektors og fara að segja þeim fyrir verkum með hvaða hætti þau reka sínar stofnanir. Almennt ber okkur að tryggja góða lagaumgjörð og tryggja fjármagn til þess að hér séu reknir góðir háskólar. Veruleikinn er orðinn miklu flóknari hér á Íslandi heldur en var fyrir bara 40–50 árum. Hér búa t.d. 85.000 landsmenn af erlendum uppruna, sumir þeirra komu utan EES og það þarf að skoða þetta allt í samhengi.
Svo ég svari nú spurningu úr fyrra andsvari hv. þingmanns, hvort ég teldi að um misnotkun á kerfinu hafi verið að ræða, þá get ég a.m.k. sagt að það var ýmislegt sem benti til þess að það að námið væri frítt hafi gert það að verkum að ásókn hingað væri miklu meiri en hún hefur verið á Norðurlöndunum. Það var full ástæða til að taka á því, m.a. til að nýta takmarkað fjármagn betur fyrir skólana.