157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:10]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör sem fylla mig ákveðinni von, það er jákvætt að heyra hæstv. ráðherra tala svona og vonandi munu þeir ráðherrar sem stýra þeim ráðuneytum sem sjá um yngri skólastigin taka þetta til sín.

Það sem mig langar að spyrja hér um og ræða í seinni ræðu minni eru ríkisstyrktir einkafjölmiðlar. Ég hef sjálfur töluverðar áhyggjur af því að þegar fjölmiðlar eru allir meira og minna komnir á ríkishöndina, það er hönd sem fæðir, þá verði innri ritstýring. Ég séð nokkur dæmi þess bara síðasta þingvetur að þingmenn létu fjölmiðla heyra það og hótuðu að taka styrki af þeim. Það er nú svo gott kannski að segja það að þessi hæstv. ráðherra, Logi Einarsson, lét sig þetta varða og ræddi um að þetta ætti ekki að gera. En það eru ekki allir ráðherrar (Forseti hringir.) kannski eins og hæstv. ráðherra Logi Einarsson. Þess vegna hef ég áhyggjur af þessu, að þegar (Forseti hringir.) aðilar, hvort sem það eru fjölmiðlar eða aðrir, eru komnir á ríkisstyrk, geti það skert með einhverjum hætti þeirra málfrelsi. — Afsakaðu, forseti.