fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég held að ég verði leiðrétta hv. þingmann, ég held að hann hafi ekki verið fæddur á þeim tíma sem ég var að vísa til. Ég var ekki að saka hv. þm. Smára Másson neitt sérstaklega um það að vera hörundssár. Ég gengst alveg við því sjálfur að það get ég verið og ég held að það sé bara eðli hlutarins, við erum stundum í eldlínunni og það gustar um okkur og stundum er maður smærri í sér heldur en aðra daga þannig að það var alls ekki meiningin og ég biðst afsökunar ef því hefur verið tekið þannig. Ég nefndi áðan mikilvægar menningarstofnanir þjóðarinnar og ég tel að Ríkisútvarpið sé gríðarlega mikilvæg menningarstofnun sem eigi að standa vörð um. Ég mun ekki gera neitt sem verður til þess að eyðileggja eða skemma þá stofnun. Hins vegar er allt í lagi að hafa vakandi auga með því hvort hún geti orðið of fyrirferðarmikil á markaði sem er veikur og brothættur og það mun ég reyna að standa vörð um.