157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:28]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég minntist ekki á málefni strandveiða og byggðakvóta, málefni sem ég fékk í sumar samkvæmt forsetaúrskurði, skv. 5. mgr. 8. gr. laga, svokallaður 5,3% pottur, er sú að við erum hér að ræða fjárlög og það er ekkert fjallað um þennan málaflokk í fjárlögum. Ég hef því haldið mig við fjárlagaumræðuna. Varðandi þetta verkefni í ráðuneyti mínu þá erum við að fara yfir þetta mál og skoða líka byggðaleg áhrif á þeim pottum sem nú eru til staðar og líka þær forsendur sem liggja að baki þeim úthlutunum sem þar eru.

Varðandi það sem hæstv. félagsmálaráðherra sagði í ræðu um stefnuræðu forsætisráðherra þá er bara mjög einfalt að lesa stjórnarsáttmálann. Þar segir orðrétt að ríkisstjórnin muni tryggja 48 daga til strandveiða. Þetta er í 17. málslið þar. Hvenær ætlar ráðherra að úthluta í hina pottana? Ég óska eftir því að þeirri vinnu verði hraðað en við munum gera það eftir föngum og sem allra fyrst, þegar sú greiningarvinna liggur fyrir. Ég get bent á það að á síðasta ári var Ríkisendurskoðun með álit sem lýtur að því að ekki hefði farið fram nein rannsókn varðandi almenna byggðakvótann, byggðaleg áhrif af þeim kvóta.