fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Varðandi þennan málaflokk þá vísa ég til skýrslu Ríkisendurskoðunar frá í fyrra. En þá hefur Ríkisendurskoðun greinilega ekki talað við Byggðastofnun. Það sem búið er að úthluta er svokallaður sértækur byggðakvóti, sem er aflamark Byggðastofnunar sem bundið er í samningum. Öðru hefur ekki verið úthlutað enn en við erum að fara yfir þetta mál og það sem við erum að gera hér og ég horfi fram á er að við munum sennilega einfalda kerfið. Það er markmiðið. Ég mun leggja fram frumvarp, það stendur í þingmálaskrá, frumvarp til laga um strandveiðar og byggðakvóta. Það er sett á febrúarmánuð. Og varðandi það að strandveiðar séu opið kerfi, það er ekki rétt. Það eru gefin út leyfi til strandveiða. Það er sótt um leyfi til strandveiða og stjórnvöld gefa leyfi til strandveiða þannig að það er ekki opnara en það. Þetta er leyfisbundin atvinnustarfsemi og hið pólitíska markmið er algerlega skýrt. Ég hef farið með minnisblað til ríkisstjórnarinnar þar sem kemur fram að ég tel að núverandi aflaheimildir til 5,3% kerfisins dugi ekki til að tryggja 48 daga og vísa þar til álits atvinnuvegaráðuneytisins.