157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:39]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir fína yfirferð yfir hans málaflokka eins og þeir koma fram í bókinni góðu sem við erum að tala hér um í dag, 365 blaðsíðna bókinni. Ráðherra sagði fyrr í vikunni að hann væri í beinu samtali við þjóðina til að fá skýra mynd af þeim málum sem brenna á íbúum og sveitarstjórnarfólki. Hann segir kröfu um nútímavæðingu innviða háværa hvert sem farið er, krafa um bundið slitlag á malarvegi, sterkt símasamband, styttri vegalengdir og fleiri jarðgöng. Hann segir ríkisstjórnina hafa lagt fram skýra stefnu um uppbyggingu innviða í landinu. Hæstv. ráðherra: Gæti ég fengið að sjá þá stefnu? Ég hef ekki orðið vör við hana. Ráðherra hefur sagt að að öllu óbreyttu ætli hann að hefja nýjar jarðgangaframkvæmdir af fullum þunga árið 2027. Miðað við þessi plön sýnist mér þessi ríkisstjórn ekki vera að fara að rjúfa neina kyrrstöðu í jarðgangagerð. Það er árið 2025 í dag. Gæti hæstv. ráðherra farið nánar yfir hvernig hann hyggst rjúfa kyrrstöðuna og upplýst hvar fyrstu jarðgöngin á hans vakt verða? Hvernig hyggst ráðherra treysta stoðir hinna dreifðu byggða og jafna búsetuskilyrði? Þá hefur ráðherra boðar framlagningu metnaðarfullrar samgönguáætlunar fyrir árin 2026–2040. Ég sé í þingmálaskránni að það er áætlað að þetta verði lagt fram í nóvember og ég bara vona að það verði gert í byrjun nóvember vegna þess að svona viðamikil áætlun krefst yfirlegu og góðrar umræðu og við þurfum að fá örugglega marga umsagnaraðila og við þurfum að vinna þetta vel. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra einnig hvernig forgangsröðun framkvæmda er áætluð eins og hún mun birtast í komandi samgönguáætlun.