157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:48]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Varðandi átak í uppbyggingu innanlandsflugvalla þá hefur átt sér stað átak í uppbyggingu á Akureyrarflugvelli fyrir milljarða króna. Þar hefur verið millilandaflug, þrjú erlend flugfélag, Easyjet og tvö önnur flugfélög. Fyrstu þrjú árin hafa verið styrkt og vonandi mun Easyjet t.d. halda áfram flugi sem er gríðarlega mikilvægt fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Það er ákveðnar framkvæmdir varðandi lendingarljós á suðurhluta brautarinnar og líka norðurhluta brautarinnar og vonandi tekst okkur að festa innanlandsflug þar í sessi. Varðandi Egilsstaðaflugvöll þá eru fyrirhugaðar framkvæmdir þar fyrir milljarða króna á svokölluðum lúppum, fyrir hreinsun flugbrauta svo þær flugvélar sem lenda geti keyrt að flugstöð. Það er núna í undirbúningsvinnu og það mun verða mikil fjárfesting. Ég tel að þetta séu bæði gríðarlega mikilvæg verkefni. Við erum með innanlandsflugvelli sem eru Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur sem millilandaflugvélar geta lent á, svo líka Egilsstaðaflugvöllur og Akureyrarflugvöllur sem eru mikilvægir varaflugvellir. Það er mikilvæg uppbygging en uppbygging er líka mikilvæg á öðrum innanlandsflugvöllum. Ég get nefnt dæmi, t.d. Stóri-Kroppur, sem er lítil braut, og líka á Rifi, það eru mikilvægir flugvellir fyrir einkaflug, t.d. kennsluflug. Við höfum verið með uppbyggingu á flugvöllum eins og á Blönduósi fyrir sjúkraflug og það eru flugvellir víðs vegar um land sem eru mikilvægir fyrir sjúkraflug. Flugið er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, við erum fámenn þjóð í stóru landi og það er gríðarlega mikilvægt að við horfum til einkaflugsins og við höldum áfram að vera flugþjóð. Við verðum ekki flugþjóð ef við höfum ekki gott aðgengi að náminu, styrkjum námið eða veitum námslán, og að það sé hægt að stunda það sómasamlega frá Reykjavíkurflugvelli.