157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[11:52]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Bara aðeins til að árétta þá hefur tilkoma varaflugvallargjaldsins aukið möguleika okkar á að tryggja það að byggja upp flugvelli innan lands, það er gríðarlega mikilvægt. Mikilvægt er að forgangsraða þar rétt. Ef við horfum til Egilsstaða til framtíðar þá á að fara að byggja upp flughlaðið og líka akbraut. Mikil byggingarþörf er á flugvöllum innan lands eftir áralangan tíma með of litla fjárfestingu en Egilsstaðaflugvöllur er gríðarlega fjárfrek framkvæmd. Ég myndi gjarnan vilja sjá millilandaflug þar, mjög gjarnan.

Varðandi ágæta spurningu hv. þingmanns um samanburð við Noreg þá er norska flugvallakerfið með eina miðstöð sem er Gardermoen fyrir innanlandsflug og millilandaflug. Við erum með Keflavík fyrir millilandaflug og Reykjavík fyrir innanlandsflug. Það að Isavia hafi tekið innanlandsflugið út úr og stofnað Isavia Innanlandsflugvellir og svo gert þjónustusamning er ekki í samræmi við þann samruna sem átti sér stað á sínum tíma þegar Keflavíkurflugvöllur sameinaðist Flugstoðum sem voru þá innanlandsflugvellirnir og ANS, yfirflugið. Það var mjög sérstök framkvæmd að mínu mati. (Forseti hringir.) Í Noregi er það þannig að flugvellir sem eru reknir með hagnaði greiða niður þá sem eru reknir með tapi. (Forseti hringir.) En við erum bara með einn flugvöll í landinu sem er hagnaður af og það er Keflavíkurflugvöllur.