157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:01]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir hans innlegg hér í upphafi þessarar umræðu. Ég ætlaði að spyrja fjöldamargra spurninga en ég ætla að reyna að halda mig við kannski nokkrar. Fyrir átta árum, þegar ég tók fyrst sæti á þingi, var u.þ.b. að komast á dagskrá að tvöfalda vegina út frá höfuðborginni til Keflavíkur, Selfoss og Akraness. Síðan eru liðin átta ár. Enginn af þessum vegum hefur verið kláraður fullkomlega. Vegurinn til Keflavíkur er að klárast við Straumsvík en enn er eftir að fjarlægja hringtorg fyrir ofan Reykjanesbæ. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvenær á að ljúka þessum vegarspottum öllum, þ.e. til Selfoss, Keflavíkur og Akraness? Hvenær telur hæstv. ráðherra að þessir vegarkaflar verði tvöfaldaðir alla leið? Þetta hefur verið bútasaumur síðustu átta ár, t.d. á leiðinni á Selfoss. Þar er ekki enn búið að klára. Menn höfðu ekki framsýni einu sinni til þess að gera mislæg gatnamót við Biskupstungnabraut á þjóðvegi 1 þegar það var gert þannig að líklega þarf að taka það líka til endurskoðunar mjög fljótlega. Hvenær hyggst hæstv. ráðherra klára þessa vegarspotta, tvöfalda þá eða a.m.k. gera 2+1 veg til þessara nágrannabæja höfuðborgarinnar? Auðvitað þarf að horfa lengra og ganga lengra í þessu sambandi og tvöfalda alla leið á Hvolsvöll og upp í Borgarnes en það er kannski seinni tíma mál.

Nú kemur hæstv. ráðherra, ég ætla að spyrja um jarðgöng líka, hann talar um að það verði alltaf ein jarðgöng í gangi. Nú er hæstv. ráðherra búinn að vera við stjórnvölinn í eitt ár og hann boðar núna að þetta byrji eftir tvö ár. Það tekur sem sagt allt kjörtímabilið að byrja að efna þetta loforð um að það séu jarðgöng í gangi á hverju einasta ári. (Forseti hringir.) Af hverju dvelur svo að klára þetta og hefja fyrstu jarðgöngin og hvaða jarðgöng gætu þá orðið?