157. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[12:04]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er ekki rétt að ég sé búinn að vera í embætti í eitt ár. Ég tók við embætti 21. desember síðastliðinn þannig að það eru átta, níu mánuðir. Tíminn er bara svo rosalega fljótur að líða. Það er rétt að það er markmið okkar að vera alltaf með ein jarðgöng í gangi á hverjum tíma sem ég tel vera mjög mikilvægt markmið. Ég hefði helst viljað hafa tvenn jarðgöng á hverjum tíma en það hafa ekki verið gerð nein jarðgöng síðastliðin ár.

Varðandi þessi átta ár: Það eru verk fyrri ríkisstjórna en við erum nýbúin að taka við. Framkvæmdirnar verða í takt við fjárlög. Fyrsta markmið ríkisstjórnarinnar er að ná niður verðbólgu og vaxtastigi.

Varðandi tvöföldun út frá höfuðborginni: Eins og ég skil það rétt þá mun Reykjanesbrautin vera tilbúin mjög fljótlega, ég held bara núna í haust, sem 2+2 vegur að hringtorginu sem hann nefndi en ekki þaðan upp að Leifsstöð, það kemur seinna. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að hraða líka 2+2 vegi á Suðurlandi, til Selfoss, en tvöföldun er mjög dýrt verkefni og það er mjög mikilvægt að forgangsraða rétt og ekki tvöfalda nema umferðarálag kalli raunverulega á það. Það er svo sannarlega komið á Keflavíkurveginn að mínu mati.